2008-03-08 15:30:10 CET

2008-03-08 15:31:11 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Hf. Eimskipafélag Íslands - Boðun hluthafafundar

Dagskrá og tillögur aðalfundar 2008


Aðalfundur HF. Eimskipafélags Íslands 2008 verður haldinn þriðjudaginn 18. mars
á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2,  og hefst kl. 17.00. 


Dagskrá aðalfundar
1.	Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári 
2.	Ársreikningur félagsins lagður fram til staðfestingar 
3.	Ákvörðun um meðferð taps félagsins á reikningsárinu 2007 
4.	Þóknun til stjórnarmanna fyrir komandi starfsár ákveðin
5.	Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins 

a.	Breyting á 19. gr. 
Nýr 1. ml. ”Stjórn félagsins skipa fimm menn sem kosnir skulu árlega á
aðalfundi en auk þess skulu tveir varamenn vera kjörnir árlega á aðalfundi.” 

b.	Breyting á 21. gr. 
Í stað ”tveggja stjórnarmanna” komi ”meirihluti stjórnarmanna”

c.       Breyting á 4. gr. Nýr málsliður í 1. mgr.
”Stjórn félagsins hefur heimild til að ákveða að hlutafé félagsins verði     
gefið út í erlendum gjaldmiðli í stað íslenskra króna, telji stjórnin slíkt
fýsilegt, sbr. heimild í  1. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Skal við
umreiknun hlutafjárins fara að ákvæðum laga um ársreikninga nr. 3/2006, sbr. 5.
mgr. 1. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Skal stjórn jafnframt heimilt að
gera nauðsyn¬legar breytingar á samþykktum félagsins sem leiða af útgáfunni,
þ.á m. breyta fjárhæðum þeim sem fram koma í 1. mgr. 3. gr. samþykkta félagsins
og varða breytinguna.“ 
      6. Stjórnarkjör
      7. Kjör endurskoðenda
      8. Tillögur um kaup á eigin hlutum
      9. Önnur mál löglega fram borin


Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi þurfa að berast stjórn eigi
síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. 

Framboðsfrestur til stjórnar rennur út 13. mars kl. 17.00. Framboðum skal skila
skriflega til stjórnar HF. Eimskipafélags Íslands á skrifstofu forstjóra,
Sundakletti, Korngörðum 2-4, 104 Reykjavík. 

Dagskrá fundarins, endanlegar tillögur svo og ársreikningur félagsins munu
liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis 7 dögum fyrir
aðalfund. 

Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhent hluthöfum á aðalfundardaginn frá kl.
16.00 á fundarstað. 

Stjórn HF. Eimskipafélags Íslands.

Frekari upplýsingar veitir
Dögg Hjaltalín, forstöðumaður fjárfestatengsla í síma: 825 7225

eim auglysing agm.pdf