|
|||
![]() |
|||
2015-10-14 08:00:00 CEST 2015-10-14 08:00:39 CEST REGULATED INFORMATION Össur hf. - ÁrsreikningurÖssur hf. : Ársfjórðungsuppgjör Q3 2015 - hádegisverðarfundur 23. október kl.12:00Tilkynning frá Össuri hf. no: 40/2015 Össur hf. birtir ársuppgjör eftir lokun markaða fimmtudaginn 22. október 2015. Símafundur föstudaginn 23. október kl. 8:00 Símafundur verður haldinn föstudaginn 23. október kl. 8:00 þar sem Jón Sigurðsson, forstjóri, og Sveinn Sölvason, fjármálastjóri, munu kynna niðurstöður þriðja ársfjórðungs. Fundurinn fer fram á ensku. Innhringinúmer á símafundinn er 800-7417. Hádegisverðarfundur föstudaginn 23. október kl. 12:00 Hádegisverðarfundur verður haldinn á Íslandi þann 23. október kl. 12:00 þar sem Jón Sigurðsson, forstjóri, og Sveinn Sölvason, fjármálastjóri, munu kynna niðurstöður þriðja ársfjórðungs. Hádegisverðarfundurinn verður haldinn í höfuðstöðvum Össurar hf. að Grjóthálsi 5 á 4. hæð. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á netfangið ir@ossur.com. Gögn sem tengjast uppgjörinu verða birt á vefsíðu Össurar: www.ossur.com/investors [HUG#1957836] |
|||
|