|
|||
2014-12-12 12:57:52 CET 2014-12-12 12:58:53 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLeiðrétting: Landsbankinn hf. stækkar flokk sértryggðra skuldabréfaLeiðrétting á tilkynningu sem var birt 16:45 11.12.2014 GMT. Ástæður leiðréttingar: Upplýsingar um áður útgefna fjárhæð í flokki LBANK CB 17 og heildarstærð flokksins eftir útgáfu voru rangar. Landsbankinn hf. lauk í dag sölu á LBANK CB 19, óverðtryggðum flokki sértryggðra skuldabréfa sem skráður er á Nasdaq Iceland. Útgáfan var stækkuð um 900 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,95%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 1.740 m.kr. í sama flokki og nemur heildarstærð flokksins því 2.640 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að því að bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 19. desember 2014 en Straumur fjárfestingabanki hf. mun sinna viðskiptavakt. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. |
|||
|