|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2017-08-24 17:06:20 CEST 2017-08-24 17:06:20 CEST REGULATED INFORMATION Orkuveita Reykjavíkur - ÁrsreikningurTraust afkoma ORLækkandi rekstrarkostnaður hjá Orkuveitu Reykjavíkur á sama tíma og ýmis ytri skilyrði voru hagstæð skópu fyrirtækinu talsverðan hagnað á fyrri helmingi ársins. Samkvæmt árshlutareikningi sem stjórn samþykkti í dag var afkoma fyrirtækisins jákvæð sem nam 7,3 milljörðum króna fyrstu sex mánuði ársins 2017. Festa í rekstri og álverð hækkar Innan samræðu Orkuveitu Reykjavíkur eru, auk móðurfélagsins, Veitur, Orka náttúrunnar og Gagnaveita Reykjavíkur. Kostnaður við rekstur fyrirtækjanna lækkaði frá fyrra ári um 152 milljónir króna. Þrátt fyrir samningsbundnar launahækkanir þá vógu þar á móti minni kostnaður við raforkuflutning og raforkukaup til endursölu. Það síðarnefnda má meðal annars rekja til aukinnar framleiðslu ON í Hellisheiðarvirkjun eftir að Hverahlíðarlögn var tekin í notkun. Tekjur samstæðunnar jukust þrátt fyrir að verð á ýmissi veituþjónustu hafi verið lækkað í byrjun árs. Hækkandi álverð, sem er viðmiðun í raforkusölu til stórnotenda, hefur þar áhrif og aukin umsvif í samfélaginu. Reiknað verðmæti langtímasamninga á raforku til álbræðslu hafa einnig vaxið með hækkuðu álverði. Hækkunin reiknast samstæðunni til tekna og skýrir það hagnað tímabilsins að verulegu leiti, eða sem nemur 4,9 milljörðum af 7,3 milljarða króna hagnaði. Lykiltölur fjármála á vef OR Samhliða árshlutauppgjörum hefur Orkuveita Reykjavíkur gefið út lykiltölur fjármála. Þær er nú að finna á vef OR á slóðinni https://www.or.is/fjarmal/fjarmalafrettir/lykiltolur. Á vefnum er einnig að finna árshluta- og ársreikninga OR og dótturfyrirtækja fyrir síðustu ár. Bjarni Bjarnason, forstjóri Þessi niðurstaða er góð fyrir fyrirtækið, eigendur þess og viðskiptavini. Fjárhagsstaða Orkuveitu Reykjavíkur heldur áfram að styrkjast og sú sparnaðarmenning sem byggð hefur verið upp stuðlar að því að fólk njóti grunnþjónustu fyrirtækjanna við sem lægstu verði. OR siglir þó ekki lygnan sjó. Hluta afkomubatans í þessu uppgjöri má rekja til þátta sem við stýrum ekki á borð við álverð. Sá hagnaður er því fugl í skógi en ekki í hendi. Þá er að koma á daginn að við eigum fyrir höndum dýrar aðgerðir vegna þeirra alvarlegu rakaskemmda sem fyrst komu í ljós árið 2015 í hluta skrifstofuhúsnæðis fyrirtækisins. Á næstunni þurfum við að eiga gott samtal um hvað skynsamlegast er að gera í þeim efnum. Rekstraryfirlit stjórnenda
Nánari upplýsingar: |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|