|
|||
2009-04-03 17:23:39 CEST 2009-04-03 17:24:40 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirAuglýsing um útboð ríkisvíxla RIKV 09 0715Miðvikudaginn 8. apríl kl: 14:00 fer fram útboð á ríkisvíxlum með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. Rétt er að benda á að útboð ríkisvíxla eru venjulega haldin kl. 11:00 en þar sem ákvörðun um stýrivexti Seðlabankans fer fram þennan dag er útboðinu frestað til kl. 14:00. Heildarfjárhæð útboðsins verður allt að 20.000 milljónum króna að nafnverði. Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagur 15. apríl 2009. Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokk ríkisvíxla: Flokkur RIKV 09 0715 Gjalddagi 15.7.2009 Lánstími 3 mánuðir Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi fimmtudaginn 16. apríl 2009. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9635. |
|||
|