|
|||
2008-05-21 18:21:00 CEST 2008-06-03 16:22:59 CEST SÄÄNNELTY TIETO Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir- Sérstakt útboð ríkisbréfa - RIKB 08 1212Vegna mikillar eftirspurnar eftir stuttum ríkistryggðum skuldabréfum hefur ríkissjóður tekið ákvörðun um að mæta henni með sölu í ríkisbréfaflokki, RIKB 08 1212 sem er á gjalddaga 12. desember 2008. Framangreint útboð mun koma sem viðbót við útgáfu sem var tilkynnt þann 14. janúar sl. í Ársáætlun í lánamálum ríkissjóðs 2008. Útboðið fer fram þriðjudaginn 27. maí klukkan 14:00 með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. Heildarfjárhæð þessa útboðs verður allt að 15.000 milljónir króna að nafnverði. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudaginn 29. maí 2008. Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokk ríkisverðbréfa: Flokkur RIKB 08 1212 Lokagjalddagi 12.12.2008 Útistandandi fjárhæð 22.350 m kr. Lánstími 6,5 mán. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633. |
|||
|