2010-11-05 12:45:58 CET

2010-11-05 12:46:57 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggðra og verðtryggðra ríkisbréfa RIKB 16 1013 og RIKS 21 0414


Útboð á óverðtryggðum og verðtryggðum flokkum ríkisbréfa, RIKB 16 1013 og RIKS
21 0414 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig
háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta
ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. 

Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 16 1013:
Alls bárust 24 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 12.022 m.kr. að nafnverði. 19
tilboðum var tekið fyrir 9.822 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 102,15 (5,56%
ávöxtunarkröfu). 

RIKS 21 0414:
Alls bárust 19 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 6.620 m.kr. að nafnverði. 17
tilboðum var tekið fyrir 6.370 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 104,76 (3,25%
ávöxtunarkröfu). 


Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 9.
nóvember. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 10. nóvember 2010