|
||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||
2017-09-27 11:09:42 CEST 2017-09-27 11:09:42 CEST REGLERAD INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki undirritar samninga um viðskiptavakt við Íslandsbanka, Kviku og LandsbankannArion banki hf. hefur undirritað samninga við Íslandsbanka, Kviku og Landsbankann um viðskiptavakt á sértryggðum skuldabréfum á Nasdaq OMX Iceland hf. útgefnum af Arion banka. Tilgangur samningana er að efla viðskipti með þau skuldabréf sem samningarnir taka til í því skyni að eðlilegt markaðsverð skapist á skuldabréfunum og verðmyndum verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Viðskiptavakar munu daglega setja fram kaup- og sölutilboð í skuldabréfin. Lágmarksfjárhæð að nafnvirði í markflokka skuldabréfa skal vera 80 m. kr. en lágmarksfjárhæð tilboða í aðra flokka skal vera 20 m. kr. Fyrir markflokka gildir að ef útistandandi nafnvirði er minna en 10 ma. kr. skal fjárhæð tilboða vera 60 m. kr. en 80 m. kr. þegar stærð flokks hefur náð 10 ma. kr. að nafnvirði. Skuldabréfaflokkarnir ARION CBI 21, ARION CBI 25, ARION CBI 29 ARION CB 19 og ARION CB 22 eru markflokkar. Aðrir flokkar eru ARION CBI 19 og ARION CBI 34. Hámarksmunur kaup- og sölutilboða fer eftir árafjölda til lokagjalddaga á hverjum tíma sbr. neðangreinda töflu.
Hámarksfjárhæð heildarviðskipta sem viðskiptavaka er skylt að eiga með skuldabréfaflokka sem falla undir þennan samning hvern dag sem viðskiptavaki er skuldbundinn til að setja fram tilboð samkvæmt samningi þessum skal vera samtals kr. 500 milljónir,- að nafnvirði samanlagt í öllum skuldabréfaflokkum. Arion banki mun veita viðskiptavökum aðgang að verðbréfalánum. Hámarkslán í hverjum flokki sértryggðra skuldabréfa er 320 m.kr. að nafnverði fyrir markflokka en 80 m.kr. að nafnvirði fyrir aðra flokka. |
||||||||||||||||||
|