|
|||
2008-01-15 08:57:47 CET 2008-01-15 08:57:47 CET REGULATED INFORMATION FL GROUP hf. - FyrirtækjafréttirFL Group semur við Saga Capital og Glitni banka um viðskiptavaktFL Group hefur samið við Saga Capital Fjárfestingarbanka og Glitni banka um að annast viðskiptavakt með hlutabréf í FL Group fyrir eigin reikning félaganna. Samningur við aðila felur í sér að sett verða fram daglega kaup- og sölutilboð í hlutabréf FL Group í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Tilboðin eru sett fram í viðskiptakerfi OMX á Íslandi, áður en markaður er opnaður og skulu ekki gilda lengur en innan dagsins. Skilmálar viðskiptavakasamninganna eru eftirfarandi: Aðilar skuldbinda sig til að setja daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf FL Group að lágmarki kr. 500 þúsund að nafnverði, hvor fyrir sig, á verði sem ákveðið er í hvert skipti. Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en 1,0% og frávik frá síðasta viðskiptaverði ekki meira en 2,0%. Hámarksfjárhæð heildarviðskipta hvors aðila fyrir sig skal vera kr. 200 milljónir að markaðsvirði dag hvern. Saga Capital og Glitnir banki munu hefja viðskiptavaktina þann 15. janúar 2008. Frekari upplýsingar veitir: Halldór Kristmannsson Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs Sími: 591 4400 / 669 4476 Póstfang: halldor@flgroup.is Um FL Group FL Group er alþjóðlegt fjárfestingafélag með áherslu á þrjú fjárfestingasvið, FIG, Private Equity og Capital Markets. FIG hefur umsjón með áhrifafjárfestingum í fjármálafyrirtækjum og tryggingafélögum. Private Equity heldur utan um óskráðar eignir ásamt skráðum eignum sem falla að fjárfestingarstefnu félagsins. Capital Markets svið félagsins hefur umsjón með markaðsviðskiptum sem lúta að skammtíma fjárfestingum sem og framkvæmd afleiðu- og verðbréfaviðskipta tengdum eignasafni félagsins. Höfuðstöðvar FL Group eru í Reykjavík en félagið er einnig með skrifstofur í Lundúnum. FL Group fjárfestir í félögum um allan heim en leggur sérstaka áherslu á fjárfestingar í Evrópu. FL Group er skráð á OMX Nordic Exchange í Reykjavík (OMX: FL) og hluthafar félagsins eru rúmlega 4.000 talsins. Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu FL Group, www.flgroup.is. |
|||
|