|
|||
2012-10-19 13:45:00 CEST 2012-10-19 13:45:02 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða í útboði óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 31 0124Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 31 0124 fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar: RIKB 31 0124: Alls bárust 19 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 8.200 m.kr. að nafnverði. 9 tilboðum var tekið fyrir 2.500 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 95,350 (6,95% ávöxtunarkröfu). Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 23. október. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi viðskipti er 24. október 2012. |
|||
|