2007-12-14 10:49:39 CET

2007-12-14 10:49:39 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Icelandic Group hf. - Fyrirtækjafréttir

-Viljayfirlýsingu um sölu á 81% af eignarhlut Icelandic Group hf. í Icelandic Holding Germany hefur verið afturkölluð


Icelandic Group hf. og Finnbogi A. Baldvinsson hafa komist að samkomulagi um að
afturkalla viljayfirlýsingu um sölu á 81% eignarhlut í Icelandic Holding
Germany, móðurfélagi Pickenpack Hussmann & Hahn GmbH í Þýskalandi og Pickenpack
Gelmer SAS í Frakkland, til hins síðarnefnda. 

Ástæðuna fyrir afturkölluninni má fyrst og fremst rekja til skilyrða á
alþjóðlegum fjármálamálamörkuðum hafa verið sérlega óhagstæð frá því að skrifað
var undir viljayfirlýsinguna. 

Nánari upplýsingar veitir:

Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandic Group S: 896 1455

Reykjavík 14. desember 2007







Um Icelandic Group
Icelandic Group (OMX Nordic Exchange: IG) er alþjóðlegt net fyrirtækja sem
starfa hvert á sínum markaði við framleiðslu og sölu sjávarafurða.  Á mörgum
mörkuðum er félagið þekkt fyrir vörumerki sitt ICELANDIC, sérstaklega innan
veitingahúsa og mötuneyta.  Félagið er einnig stór birgi smásöluverslana með
framleiðslu undir eigin vörumerkjum eða undir vörumerkjum smásölukeðjanna. 
Starfsmenn Icelandic Group eru um 4.600.  Hjá þeim stóra hópi liggur
yfirgripsmikil þekking sem spannar allt frá veiðum og frumvinnslu sjávarfangs
til vöruþróunar og framleiðslu tilbúinna rétta og þekking á markaði.