2012-06-18 18:18:56 CEST

2012-06-18 18:19:57 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Fyrirframgreiðslur á erlendum lánum Ríkissjóðs Íslands og Seðlabanka Íslands


Ríkissjóður Íslands og Seðlabanki Íslands greiða í byrjun þessarar viku samtals
171 ma.kr. af lánum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) og Norðurlöndunum sem
tekin voru í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda sem studd var af AGS. 

Um er að ræða fyrirframgreiðslu að fjárhæð 319 milljónir SDR, jafnvirði um 62
ma.kr., til AGS og 674 milljónir evra, jafnvirði um 109 ma.kr., til
Norðurlandanna. 

Að þessum fyirframgreiðslum loknum verður búið að greiða til baka 53% af
upphaflegri lánsfjárhæð frá AGS og 59% af upphaflegri lánafyrirgreiðslu
Norðurlandanna. 
Þessi ákvörðun um fyrirframgreiðslur  kemur í framhaldi af skuldabréfaútgáfu
ríkissjóðs á alþjóðlegum mörkuðum í maí síðastliðnum að fjárhæð 1.000 milljónir
bandaríkjadala, að jafnvirði 125 ma.kr. Sú aðgerð undirstrikar aðgang Íslands
að erlendum lánsfjármörkuðum og veitir svigrúm til að endurgreiða önnur lán sem
eru til skemmri tíma sem tekin voru sem hluti af efnahagsáætlun stjórnvalda og
AGS. Fyrirframgreiðslan nú nær til gjalddaga sem falla á árinu 2013 og 2014 í
tilfelli AGS-lána. Greiðslur til Norðurlandanna eru vegna gjalddaga sem falla á
árunum 2016, 2017 og 2018. 
Ákvörðun um endurgreiðslu er jafnframt tekin með hliðsjón af tiltölulega rúmri
lausafjárstöðu ríkissjóðs og Seðlabankans í erlendri mynt næstu misseri. 

Lán AGS og Norðurlandanna námu í upphafi um 3,5 milljörðum evra eða sem svarar
um 558 ma.kr. miðað við núverandi gengi,   Útgáfa ríkisjóðs í maí sl. og
endurgreiðsla lána nú hefur ekki áhrif á hreinar skuldir ríkissjóðs, en
heildarskuldir ríkissjóðs hækka um 2,6% af VLF þar sem hluta lántökunnar er
varið til að greiða niður skuldir sem færðar eru hjá Seðlabankanum. Erlend
skuldastaða þjóðarbúsins lækkar í heild um u.þ.b. 2,6% af VLF við þessar
breytingar en hrein skuldastaða er óbreytt.