|
|||
2024-05-13 19:08:00 CEST 2024-05-13 19:08:01 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÍslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 8.360 m.kr. Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 29 voru samtals 940 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,74%. Heildartilboð voru 7.060 m.kr. á bilinu 3,73% til 3,87%. Bankinn gefur einnig út 10.000 m.kr. í flokknum til eigin nota. Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CBF 27 voru samtals 920 m.kr. á 1 mánaða REIBOR + 0,25%. Heildartilboð voru 1.300m.kr. á kröfunni REIBOR + 0,24% til REIBOR + 0,40%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans. |
|||
|