|
|||
2013-06-13 13:45:00 CEST 2013-06-13 13:45:01 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 13 0916 og RIKV 13 1216Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 13 0916 og RIKV 13 1216 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 13 0916: Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.400 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 4.400 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,209 (flatir vextir 3,19%). RIKV 13 1216: Alls bárust 8 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 2.670 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 2.370 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,324 (flatir vextir 3,39%). |
|||
|