|
|||
2017-02-09 17:27:46 CET 2017-02-09 17:27:46 CET REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumLandsbankinn hf. : Hættir í bankaráði Landsbankans hf.Á fundi bankaráðs Landsbankans hf. í dag, 9. febrúar 2017, tilkynnti Danielle P. Neben að hún segði af sér sem bankaráðsmaður. Ástæðan er sú að Danielle er að hefja störf á nýjum vettvangi en hún hefur undanfarin ár starfað sem sjálfstæður ráðgjafi. Danielle var fyrst kjörin í bankaráð Landsbankans hf. í apríl 2013. Helga Björk Eiríksdóttir, formaður bankaráðs, segir: "Fyrir hönd Landsbankans þakka ég Danielle fyrir öflugt starf í þágu bankans á undanförnum árum. Ég þakka um leið fyrir ánægjulegt samstarf og óska henni alls hins besta í því sem hún tekur sér fyrir hendur í framtíðinni." Nánari upplýsingar veita: Rúnar Pálmason, upplýsingafulltrúi, pr@landsbankinn.is og í síma 410 6263 / 899 3745 Hanna Kristín Thoroddsen, fjárfestatengsl, ir@landsbankinn.is og í síma 410 7310 [] |
|||
|