|
|||
2007-11-16 10:44:48 CET 2007-11-16 10:44:48 CET REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir- VaxtaákvörðunSamkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998, með síðari breytingum, og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf getur stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi. Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir því á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem haldið var 16. nóvember, ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboði íbúðabréfa og uppgreiddra ÍLS-veðbréfa eru 4,85%. Vaxtaálag vegna rekstrar er 0,25%, vegna varasjóðs 0,20% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,25%, samtals 0,70% Íbúðalánasjóður hefur í kjölfar útboðs á íbúðabréfum ákveðið að útlánsvextir íbúðalána sjóðsins hækki. Útlánsvextir íbúðalána sjóðsins eru 5,30%, á lán með uppgreiðsluálagi, en 5,55% á lán án uppgreiðsluálags. |
|||
|