2015-06-29 17:45:00 CEST

2015-06-29 17:45:13 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Ríkisreikningur 2014


Uppgjör ríkisreiknings fyrir árið 2014 hefur nú verið birt og ríkisreikningur
sendur Alþingi. Helstu niðurstöður eru að tekjujöfnuður ársins var jákvæður um
46,4 ma.kr. sem er betri afkoma en gert hafði verið ráð fyrir. Til samanburðar
var smávægilegur tekjuhalli á árinu 2013. 

Tekjurnar árið 2014 voru töluvert hærri en gert var ráð fyrir í fjárlögum og
munaði þar mest um óreglulegar tekjur eins og háar arðgreiðslur, meðal annars
frá Landsbanka Íslands, en einnig höfðu aukin umsvif í efnahagslífinu töluverð
áhrif. Gjöldin voru nokkuð umfram heimildir fjárlaga en auknar heimildir voru
samþykktar með fjáraukalögum ársins sem gerðu meðal annars ráð fyrir að hluta
af tekjuaukanum væri ráðstafað í flýtingu á niðurfærslu verðtryggðra
húsnæðislána og létta þannig af gjaldfærslum síðar. Frumjöfnuður ársins var
jákvæður um sem nemur 5,3% af landsframleiðslu samanborið við 3,0% árið 2013. 

Á árinu 2014 var ríkissjóður með hreinan lánsfjárafgang sem nam um 4% af
landsframleiðslu, samanborið við 1,6% lánsfjárþörf árið áður. Þetta var
hagstæðari niðurstaða en gert hafði verið ráð fyrir. Í fjárlögum var hrein
lánsfjárþörf áætluð um 0,9% af vergri landsframleiðslu en um 2%
lánsfjárafgangur í fjáraukalögum. 

Efnahagsleg staða Íslands styrkist

„Efnahagsleg staða Íslands sem hefur verið að styrkjast að undanförnu
einkennist af stöðugleika með lágri verðbólgu, litlu atvinnuleysi, auknum
kaupmætti og hallalausum ríkisrekstri. Töluverður hagvöxtur hefur verið
undanfarin ár og nam hann 1,9% árið 2014. Mikil umsvif voru í hagkerfinu en
þrátt fyrir það hefur viðskiptajöfnuður við útlönd verið jákvæður. Öflugur
hagvöxtur og aukin eftirspurn í efnahagslífinu hafa haft jákvæð áhrif á afkomu
ríkissjóðs,“ segir Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra um
niðurstöður ríkisreiknings. Hann segir mikla áherslu hafa verið lagða á að koma
ríkisrekstrinum í jafnvægi og skila afgangi í stað halla undanfarinna ára.
„Ríkisstjórnin hefur lagt á það höfuðáherslu að ná tökum á ríkisrekstrinum
ásamt því að minnka álögur á einstaklinga og atvinnulífið og stuðla að aukinni
fjárfestingu í hagkerfinu. Miklu máli skiptir að styrkja stöðu ríkissjóðs enn
frekar á næstu árum og að vinna að frekari lækkun ríkisskulda sem hlutfalls af
landsframleiðslu,“ segir fjármála- og efnahagsráðherra. 

Staðfestur með rafrænum undirritunum

Fjármála- og efnahagsráðherra, fjársýslustjóri og ríkisendurskoðandi staðfestu
ríkisreikning með rafrænum undirritunum og nýttu til þess rafræn skilríki, en
þetta er annað árið í röð sem reikningurinn er undirritaður með þessum hætti.
Ísland er í hópi fyrstu ríkja til þess að staðfesta ríkisreikning með þessum
hætti. 

Reikninginn í heild sinni með þeim sundurliðunum og skýringum sem honum fylgja
má finna á vef Fjársýslunnar, fjs.is