|
|||
2008-05-30 18:23:49 CEST 2008-05-30 18:24:49 CEST REGULATED INFORMATION Exista hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hlutaHeimild til hækkunar á hlutafé nýttVegna kaupa á hlutabréfum í Skiptum hf. og með vísan í tilkynningu Exista hf. frá 19. mars 2008 hefur stjórn Exista hækkað hlutafé félagsins um 2.813.675.174 hluti samkvæmt heimild í 4. gr. samþykkta félagsins. Stefnt er að því að hlutirnir verði teknir til viðskipta 3. júní 2008. OMX ICE mun tilkynna um töku hlutanna til viðskipta, sem kann að verða síðar, með dags fyrirvara. Heildarhlutafé félagsins eftir hlutafjárhækkun verður 14.174.767.632 krónur sem skiptist í jafnmarga hluti að nafnverði 1 króna hver. Hver hlutur í Exista ber eitt atkvæði á hluthafafundi. Nýjar samþykktir félagsins eru í fylgiskjali. Frekari upplýsingar veitir: Samskiptasvið Exista Sigurður Nordal framkvæmdastjóri sími: 550 8620 ir@exista.com Um Exista Exista hf. starfar á sviði fjármálaþjónustu, einkum vátrygginga og eignaleigu undir merkjum VÍS, Lífís og Lýsingar, og sem kjölfestueigandi í Sampo Group og Kaupþingi banka. Exista er jafnframt alþjóðlegur fjárfestir, meðal annars í Bakkavör Group, Storebrand og Skiptum. Exista er skráð á Nasdaq OMX á Íslandi og eru hluthafar um 30 þúsund. Upplýsingar um Exista er að finna á vefsíðu félagsins, www.exista.com. |
|||
|