|
|||
![]() |
|||
2017-04-06 18:01:30 CEST 2017-04-06 18:01:30 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarLandsbankinn hf. : Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag útboði sértryggðra skuldabréfa þar sem fjórir flokkar voru boðnir til sölu. Heildartilboð í útboðinu voru 27 talsins og námu samtals 2.360 m. kr. að nafnverði. Fimm tilboð að fjárhæð 180 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 19 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,27%-5,33%. Tilboðum að fjárhæð 120 m.kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 5,28%. Heildarstærð flokksins verður 17.080 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Átta tilboð að fjárhæð 620 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CB 21 á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,28%-5,34%. Tilboðum að fjárhæð 580 m. kr. var tekið á ávöxtunarkröfunni 5,30%. Heildarstærð flokksins verður 4.200 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Sex tilboð að fjárhæð 640 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 22 á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,25%-3,30%. Öllum tilboðum í flokkinn var tekið á ávöxtunarkröfunni 3,30%. Heildarstærð flokksins verður 20.500 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Átta tilboð að fjárhæð 920 m. kr. að nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI 28 á ávöxtunarkröfu á bilinu 2,99%-3,04%. Tilboðum að fjárhæð 580 m.kr. var tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 3,00%. Heildarstærð flokksins verður 5.820 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 12. apríl 2017. Arion banki, Íslandsbanki og Kvika sinna viðskiptavakt með sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. [] |
|||
|