2008-07-04 10:04:28 CEST

2008-07-04 10:05:29 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Anglų Islandų
FL GROUP hf. - Fyrirtækjafréttir

Fjárfestingafélagið FL Group verður eignarhaldsfélagið Stoðir


• Stoðir kaupa kjölfestuhlut í Baugi Group
• Eigið fé Stoða eykst um 25 milljarða króna


Reykjavík, 4. júlí 2008: Nafni fjárfestingafélagsins FL Group hefur verið
breytt í Stoðir, eignarhaldsfélag, í kjölfar endurskipulagningar á rekstri og
fjárfestingastefnu félagsins. Stoðir hafa keypt kjölfestuhlut í Baugi Group
fyrir 25 milljarða króna sem greiðast með hlutabréfum í Stoðum. 


Kaup á kjölfestuhlut í Baugi 

Stoðir hafa samið um kaup á kjölfestuhlut í Baugi Group. Seljandi hlutarins er
Styrkur Invest sem er í meirihlutaeigu Gaums. Kaupverð hlutarins er 25
milljarðar króna og verður greitt fyrir hlutinn með hlutabréfum í Stoðum sem
verður í nýjum hlutaflokki B bréfa sem bera ekki atkvæðisrétt. Viðskiptin eru
gerð með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki hluthafafundar Stoða sem
auglýstur verður síðar. 

Eftir viðskiptin munu Stoðir fara með tæplega 40% virkan eignarhlut í Baugi auk
þess að eiga eignarhlut í B hlutaflokki félagsins sem ekki veitir atkvæðisrétt.
Aðrir hluthafar í Baugi eru Kevin Stanford, Don McCarthy, Bague SA og
starfsmenn félagsins.  Stærsti hluthafi Stoða er Styrkur Invest. 

Baugur hefur fyrir þessi viðskipti lokið við sölu allra eigna á Íslandi og mun
eftirleiðis leggja alfarið áherslu á fjárfestingar í smásöluverslun í
Bretlandi, Norðurlöndum og Bandaríkjunum. Meginhluti starfsemi Baugs verður
staðsettur í London. Meðal stærstu fjárfestinga Baugs eru Iceland, House of
Fraser, Mosaic Fashions, Hamley´s, Whistles, Goldsmiths, Magasin du Nord, Illum
og Saks. 

Með kaupum á eignarhlut í Baugi eykst eigið fé Stoða um 25 milljarða króna en
nánari upplýsingar um efnahag Stoða verða birtar í uppgjöri félagins fyrir
fyrstu sex mánuði ársins 2008 sem kynnt verður þann 29. ágúst nk. 

Í framhaldi af viðskiptunum er stefnt að samnýtingu ákveðinna rekstrarþátta í
starfsemi Stoða og Baugs og er m.a. gert ráð fyrir að starfsemi félaganna í
London verði færð undir sama þak í húsakynnum Baugs. 

Endurmörkun

Fjárfestingafélagið FL Group verður nú eignarhaldsfélagið Stoðir. FL Group var
upphaflega móðurfélag rekstrarfélaga í flugrekstri og ferðaiðnaði. Stærsta eign
FL Group var Icelandair sem selt var í desember 2006 og nafnið FL Group var
skírskotun til fyrra nafns Icelandair, Flugleiða. FL Group hefur tekið miklum
stakkaskiptum síðustu misserin. Starfsemi félagsins hefur verið endurskipulögð
og fjárfestingastefnunni breytt. Nafnið FL Group endurspeglar því ekki
núverandi starfsemi félagsins. Nafnið Stoðir lýsir vel meginviðfangsefnum
félagsins sem kjölfestufjárfestis sem styður og eflir kjarnafjárfestingar sínar
til lengri tíma litið. Nafnabreytingin er gerð með fyrirvara um samþykki
hluthafafundar sem auglýstur verður síðar. 


Jón Sigurðsson, forstjóri Stoða:

„Kaupin á kjölfestuhlut í Baugi Group eru mikilvægt skref fyrir félagið og til
þess fallin að styrkja það verulega. Baugur hefur byggt upp sterka stöðu í
mörgum þekktum erlendum vörumerkjum í smásöluverslun. Rekstur þessara félaga
gengur vel og við höfum mikla trú á framtíð Baugs. 

Hlutafjáraukning sem á sér stað samhliða þessum viðskiptum styrkir einnig
eiginfjárgrunn félagsins verulega en það hefur einmitt verið meginviðfangsefni
okkar frá því að endurskipulagning félagsins hófst í desember 2007. Okkur hefur
þegar orðið vel ágengt og sjáum batamerki í rekstri félagsins þrátt fyrir mikla
ágjöf á fjármálamörkuðum. Við munum halda áfram uppbyggingarstarfinu - og nú
undir nýjum merkjum og nafni. Stoðir ríma vel við mikilvægasta hlutverk okkar,
sem er að styðja og efla kjölfestufjárfestingar okkar í Glitni, TM, Landic
Property og Baugi.” 

Frekari upplýsingar veitir:
Júlíus Þorfinnsson
Forstöðumaður samskiptasviðs
Sími: 591 4400
Netfang: julius@stodir.is
Um Stoðir:

Stoðir hf. er eignarhaldsfélag sem á 32% hlut í Glitni banka, 99% hlut í
Tryggingamiðstöðinni, 39% hlut í Landic Property og 39% hlut í Baugi, auk
annarra fjárfestinga hér á landi og erlendis.  Höfuðstöðvar Stoða eru í
Reykjavík en félagið er einnig með skrifstofu í Lundúnum.  Starfsmenn Stoða eru
25 talsins.  Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Stoða, www.stodir.is. 

Fylgjur:
Hjálagt er merki Stoða.

stodir logo.jpg