|
|||
2016-04-26 19:10:34 CEST 2016-04-26 19:10:34 CEST REGULATED INFORMATION Landsbankinn hf. - FyrirtækjafréttirLandsbankinn hf. lýkur sölu sértryggðra skuldabréfaLandsbankinn lauk í dag lokuðu útboði á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa. Alls bárust tilboð að fjárhæð 7.660 m. kr. í útboðinu og var tilboðum tekið fyrir 480 m. kr. Seld voru skuldabréf í LBANK CBI 22, verðtryggðum flokki sem skráður er á Nasdaq Iceland, fyrir 280 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,20%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 14.240 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 14.520 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Seld voru skuldabréf í LBANK CB 19, óverðtryggðum flokki sem skráður er á Nasdaq Iceland, fyrir 200 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 6,58%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 9.940 m. kr. í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 10.140 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 3. maí 2016 en Kvika sinnir viðskiptavakt með ofangreinda flokka sértryggðra skuldabréfa. Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan í lög nr. 11/2008 og reglur Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans, www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. |
|||
|