|
|||
![]() |
|||
2013-08-30 19:51:41 CEST 2013-08-30 19:52:44 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - ÁrsreikningurSamandregin árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs janúar – júní 2013.Fréttatilkynning 30. ágúst 2013 Afkoma Íbúðalánasjóðs á fyrri hluta ársins 2013 Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs fyrir fyrri helming ársins 2013 hefur verið staðfestur af stjórn sjóðsins. Rekstrarniðurstaða tímabilsins var neikvæð sem nemur 2.978 milljónum króna samanborið við 3.109 milljóna tap á sama tímabili fyrra árs. Eigið fé Íbúðalánasjóðs í lok tímabilsins var 11.720 milljónir samanborið við 14.699 milljónir í árslok 2012. Eiginfjárhlutfall sjóðsins sem reiknað er samkvæmt ákvæðum í reglugerð nr. 544/2004 um Íbúðalánasjóð er 2,5% en var 3,2% í upphafi árs. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0% og viðræður við stjórnvöld miða að því að uppfylla ákvæði reglugerðar. |
|||
|