|
|||
2015-09-30 01:01:33 CEST 2015-09-30 01:02:34 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumCORRECTION: Þorsteinn Arnalds hættir í stjórn Íbúðalánasjóðs - ráðinn tímabundið í áhættustýringu sjóðsinsÍbúðalánasjóður hefur ráðið Þorstein Arnalds tímabundið sem áhættustjóra og mun hann veita áhættustýringu Íbúðalánasjóðs forstöðu frá og með 1. október. Þorsteinn hefur setið í stjórn sjóðsins í rúmt ár og hefur margra ára reynslu á sviði fasteignamála, bæði hjá hinu opinbera en einnig í einkageiranum. Þorsteinn starfaði við greiningu og þróun fasteignamatsaðferða hjá Þjóðskrá Íslands á árunum 2004-2012. Hann starfaði við áhættustýringu hjá Arion banka frá 2012-2014 en kemur til Íbúðalánasjóðs frá Persónuvernd. Þorsteinn er verkfræðingur frá Háskóla Íslands og með meistarapróf í tölfræði frá University College í Lundúnum. Um er að ræða tímabundna ráðningu vegna brotthvarfs fyrri áhættustjóra, sem hefur ráðið sig til banka í Danmörku, en verkefni sjóðsins á þessu sviði eru afar brýn um þessar mundir og mikilvægt að brúa bilið. Starf áhættustjóra verður auglýst síðar í haust og mun Þorsteinn gegna starfinu þar til að ráðið hefur verið í það með formlegum hætti. Hann hefur samhliða sagt sig úr stjórn sjóðsins. Nánari upplýsingar veita Hermann Jónasson, forstjóri í síma 823 0900 og Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, stjórnarformaður ÍLS, í síma 899 6099 |
|||
|