2016-05-30 13:45:35 CEST

2016-05-30 13:45:35 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Aflandskrónaútboð jákvætt fyrir lánshæfi Íslands


Matsfyrirtækið Moody´s gaf í dag út stutt álit um fyrirhugað útboð Seðlabanka
Íslands á aflandskrónum.  Meðfylgjandi er lausleg þýðing á lokamálsgrein
álitsins. 

Í áliti Moody´s kemur fram það mat þeirra að fyrirhugað útboð sé jákvætt fyrir
lánshæfi Íslands að því leyti að það gefur fjárfestum, sem eiga fé bundið í
svokölluðum aflandskrónum, tækifæri til útgöngu óski þeir þess.  Það er enn
fremur mat fyrirtækisins að útboðið gæti orðið til þess að létta á þrýstingi á
innlendar eignir sem myndast hefur vegna gjaldeyrishafta og má meðal annars
merkja í mikilli styrkingu krónunnar á innlendum gjaldeyrismarkaði á síðustu
tveimur árum. 

Sérfræðingar Moody´s telja tímasetningu útboðsins skynsamlega þar sem
stjórnvöld biðu með að halda slíkt útboð þar til gjaldeyrisforði þjóðarinnar
var orðinn nægilega stór til að taka mætti á aflandskrónuvandanum, en að
forðinn dygði jafnframt fyrir mögulegri erlendri fjármagnsþörf hagkerfisins.