|
|||
2015-01-09 16:31:00 CET 2015-01-09 16:31:02 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 15 0415 og RIKV 15 0715Þriðjudaginn 13. janúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 15 0415 og RIKV 15 0715 sem eru með gjalddaga 15. apríl og 15. júlí 2015. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudagurinn 15. janúar 2015. Sótt verður um að RIKV 15 0415 RIKV 15 0715 verði tekin til viðskipta í NASDAQ á Íslandi föstudaginn 16. janúar 2015. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. |
|||
|