|
|||
2016-05-19 18:03:25 CEST 2016-05-19 18:03:25 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - FyrirtækjafréttirMánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs apríl 2016Vanskil einstaklinga lækka Vanskil einstaklinga halda áfram að dragast saman. Í lok apríl nam fjárhæð vanskila útlána til einstaklinga 2,4 milljörðum króna og var undirliggjandi lánavirði 23,5 milljarðar króna eða um 4,75% útlána sjóðsins til einstaklinga. Sambærilegt hlutfall í síðasta mánuði var 5,2%. Heildarvanskil bæði einstaklinga og lögaðila ná samtals til 5,8% lánasafnsins, en sambærilegt hlutfall í apríl 2015 var 8,3%. Hlutfall undirliggjandi lánavirðis í vanskilum lækkaði um samtals 2,7 milljarða króna milli mánaða. Sala íbúða í eigu sjóðsins gengur vel Sjóðurinn seldi samtals 204 fullnustueignir í mánuðinum. Til viðbótar þeim eignum sem seldar voru hefur Íbúðalánasjóður samþykkt kauptilboð í 315 eignir og vinna nú tilboðsgjafar að fjármögnun þeirra. Í lok mánaðar átti Íbúðalánasjóður 1.118 fullnustueignir samanborið við 1.348 eignir í ársbyrjun. Sjóðurinn hefur selt 337 eignir á árinu sem er sambærilegt við sama tímabil árið 2015 þegar seldar voru 342 eignir. Ítarlegri umfjöllun má lesa í meðfylgjandi mánaðarskýrslu |
|||
|