|
|||
![]() |
|||
2015-10-26 10:33:21 CET 2015-10-26 10:34:22 CET REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirEBITDA afkomuspá fyrir 2015 hækkuð í 210-215 milljónir USDSamkvæmt drögum að árshlutareikningi fyrir þriðja ársfjórðung 2015 var afkoma félagsins betri á fjórðungnum en ráðgert var þegar félagið uppfærði síðast afkomuspá sína. Jafnframt hafa afkomuhorfur fyrir fjórða ársfjórðung styrkst og er uppfærð EBITDA spá félagsins 210-215 milljónir USD fyrir árið 2015. Síðasta útgefna spá hljóðaði upp á 180-185 milljónir USD. Samkvæmt drögunum verður EBITDA þriðja ársfjórðungs um 150 milljón USD samanborið við um 124 milljónir USD á árinu 2014. Helstu ástæður fyrir betri afkomu á þriðja ársfjórðungi en gert hafði verið ráð fyrir eru hærri farþegatekjur og lægri eldsneytiskostnaður, auk þess sem viðhaldskostnaður var lægri en áætlað hafði verið. Í afkomuspá fyrir fjórða ársfjórðung gerir félagið ráð fyrir að EUR/USD krossinn verði að meðaltali 1,12. Eldsneytisverð félagsins í október liggur þegar fyrir, en í spánni er gert ráð fyrir að verðið verði að meðaltali, án varna, 480 USD/tonn í nóvember og 550 USD/tonn í desember. Árshlutareikningur félagsins fyrir þriðja ársfjórðung 2015 verður birtur eftir lokun markaða þann 29. október n.k. og kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn 30. október kl. 8.30. Nánari upplýsingar veita: Björgólfur Jóhannsson, forstjóri bubbi@icelandairgroup.is 896 1455 Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála bogi@icelandairgroup.is 665 8801 |
|||
|