|
|||
![]() |
|||
2015-12-02 09:32:14 CET 2015-12-02 09:32:14 CET REGULATED INFORMATION Landsvirkjun - FyrirtækjafréttirMatsfyrirtækið Standard & Poor‘s breytir horfum hjá Landsvirkjun úr stöðugum í jákvæðarMatsfyrirtækið Standard & Poor‘s hefur breytt horfum á lánshæfismati Landsvirkjunar úr stöðugum í jákvæðar og staðfest lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar BB+ fyrir langtímaskuldbindingar. Að mati S&P endurspegla bættar horfur jákvæða þróun í rekstri Landsvirkjunar á undanförnum árum þar sem stöðugt sjóðstreymi hefur dregið úr skuldsetningu og markaðsáhætta hefur minnkað. Með jákvæðum horfum og áframhaldandi jákvæðri þróun í rekstri fyrirtækisins megi búast við hækkun á lánshæfismati innan eins til tveggja ára. Reykjavík, 1. desember 2015 Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í síma 515 9000, netfang: rafnar@lv.is |
|||
|