2016-04-25 21:04:11 CEST

2016-04-25 21:04:11 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsvirkjun - Fyrirtækjafréttir

Moody‘s staðfestir lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar og hækkar grunneinkunn í ba3, horfur stöðugar




Moody‘s Investors Service hefur staðfest lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar Baa2
með ríkisábyrgð og Ba1 án ríkisábyrgðar. 

Samhliða hefur Moody’s hækkað grunneinkunn fyrirtækisins í ba3 úr b1. Breytt
einkunn endurspeglar verulega sterkari fjárhagsstöðu Landsvirkjunar og minnkun
markaðsáhættu sem dregur úr sveiflum í afkomu og sjóðstreymi. 

Horfur eru stöðugar.

Reykjavík, 25. apríl 2016

Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, í
síma 515 9000, netfang: rafnar@lv.is