|
|||
![]() |
|||
2016-12-07 15:48:38 CET 2016-12-07 15:48:38 CET REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfaArion banki hf. lauk í dag útboði á fjórum markflokkum sértryggðra skuldabréfa. Heildareftirspurn í útboðinu var 2.480 m. kr. og fjöldi tilboða var 28. Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 21 bárust fjögur tilboð að nafnvirði 160 m. kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,38%–3,40%. Öllum tilboðum í ARION CBI 21 var hafnað. Þetta var í síðasta skipti sem ARION CBI 21 er boðinn út. Heildarstærð flokksins verður 10.220 m. kr. Í verðtryggða flokkinn ARION CBI 29 bárust níu tilboð að nafnvirði samtals 800 m. kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 3,14% – 3,20%. Samþykkt voru tilboð í ARION CBI 29 að fjárhæð 640 m. kr. á 3,16% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 23.080 m. kr. Í óverðtryggða flokkinn ARION CB 22 bárust sex tilboð að nafnvirði samtals 620 m. kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,68%–5,72%. Samþykkt voru tilboð í ARION CB 22 að fjárhæð 520 m. kr. á 5,70% ávöxtunarkröfu. Heildarstærð flokksins verður 20.160 m. kr. Nýr óvertryggður flokkur ARION CB 19 var gefinn út. Alls bárust níu tilboð að nafnvirði samtals 900 m.kr., á ávöxtunarkröfu á bilinu 5,55%-5,80%. Samþykkt voru tilboð í ARION CB 19 að fjárhæð 580 m.kr. á 5,65% ávöxtunarkröfu. Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 960 milljónir vegna verðbréfalána til viðskiptavaka. Heildarstærð flokksins verður 1.540 m. kr. eftir útgáfuna. Um er að ræða stækkun á þegar útgefnum skuldabréfaflokkum sem tekinn hefur verið til viðskipta á Nasdaq OMX Íslandi ásamt nýjum flokki sem skráður verður á Nasdaq OMX Íslandi. Það sem af er ári 2016 hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 24.840 m. kr. Í heild hefur Arion banki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 62.000 m. kr. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskipasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|