2015-07-21 12:07:05 CEST

2015-07-21 12:08:06 CEST


REGULATED INFORMATION

This message has been corrected. Click here to view the corrected message

Islandic English
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

Standard & Poor's hækkar lánshæfiseinkunn Landsbankans í BBB- með jákvæðum horfum


Hið alþjóðlega matsfyrirtæki Standard and Poor's (S&P) hefur hækkað lang- og
skammtíma lánshæfiseinkunn Landsbankans úr BB+/B í BBB-/A-3 og telur horfurnar
jákvæðar. Þetta kemur fram í mati fyrirtækisins á lánshæfi Landsbankans sem
birt var í dag, 21. júlí 2015. 

Í fréttatilkynningu frá S&P kemur fram að áfram hafi dregið úr ójafnvægi í
íslensku efnahagslífi og að búast megi við auknum efnahagslegum stöðugleika
næstu árin. Hækkun á lánshæfismati Landsbankans endurspeglar þá skoðun S&P að
rekstarumhverfi íslenska bankakerfisins hafi styrkst, áhætta minnkað og að
búast megi við minni afskriftum. 

Í mati S&P kemur fram að lánshæfiseinkunn Landsbankans endurspegli sterka
eiginfjárstöðu bankans, góða afkomu og fullnægjandi áhættustöðu. Það er mat S&P
að lausafjárstaða bankans sé sterk bæði í krónum og erlendum gjaldeyri. Þá
endurspeglar lánshæfismatið einnig þær væntingar fyrirtækisins að
efnahagsreikningur Landsbankans haldist áfram sterkur. 

Steinþór Pálsson, bankastjóri, segir: „Nýtt mat Standard & Poor's er ánægjuleg
tíðindi og í takt við væntingar, m.a. í kjölfar fréttar um bætta
lánshæfiseinkunn ríkisins. Matið sýnir að staða bankans er sterk og að hann sé
á réttri leið. Það að Landsbankinn sé nú kominn upp í fjárfestingarflokk eykur
traust til bankans á mörkuðum og styður við fjármögnun hans í nánustu framtíð,
bæði á innlendum og erlendum mörkuðum.“ 



Frekari upplýsingar veitir:

Hanna K. Thoroddsen í síma 410 7328, hanna.k.thoroddsen@landsbankinn.is