|
|||
![]() |
|||
2014-04-29 15:14:29 CEST 2014-04-29 15:15:29 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - FyrirtækjafréttirVerkfallsboðun flugmanna Icelandair ehf.Félag íslenska atvinnuflugmanna (FÍA) hefur boðað ótímabundið yfirvinnubann flugmanna Icelandair ehf. sem mun hefjast kl. 6:00 þann 9. maí 2014. Þá hefur verkfall flugmanna Icelandair ehf. verið boðað á eftirfarandi tímum: Frá kl. 06:00 þann 9. maí 2014 til kl. 18:00 þann 9. maí 2014. Frá kl. 06:00 þann 16. maí 2014 til kl. 18:00 þann 16. maí 2014. Frá kl. 06:00 þann 20. maí 2014 til kl. 18:00 þann 20. maí 2014. Frá kl. 06:00 þann 23. maí 2014 til kl. 06:00 þann 25. maí 2014. Frá kl. 06:00 þann 30. maí 2014 til kl. 06:00 þann 3. júní 2014. Náist ekki samkomulag milli félagsins og FÍA mun flugáætlun félagsins raskast vegna aðgerðanna. Óvíst er hvaða áhrif aðgerðirnar muni hafa á afkomu Icelandair Group hf. Frekari upplýsingar: Björgólfur Jóhannsson, forstjóri bubbi@icelandairgroup.is 896 1455 Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála bogi@icelandairgroup.is 665 8801 |
|||
|