|
|||
![]() |
|||
2017-10-17 11:52:13 CEST 2017-10-17 11:52:13 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÚtboð Arion banka á 12, 6 og 5 mánaða víxlum – ARION 181019, ARION 180420 og ARION 180320Arion banki verður með víxlaútboð í dag þriðjudaginn 17. október 2017. Um er að ræða víxla til 12 mánaða, 6 mánaða og 5 mánaða með gjalddaga 19. október 2018, 20. apríl 2018 og 20. mars 2018. Markaðsviðskipti Arion banka hafa umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið verdbrefamidlun@arionbanki.is fyrir kl. 16:00 í dag, 17. október en greiðslu- og uppgjörsdagur er 20. október 2017. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.
|
|||
|