|
|||
2013-03-13 12:45:00 CET 2013-03-13 12:45:03 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 13 0618 og RIKV 13 0916Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 13 0618 og RIKV 13 0916 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 13 0618: Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 9.480 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 9.330 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,164 (flatir vextir 3,20%). RIKV 13 0916: Alls bárust 11 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 5.920 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 5.080 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,283 (flatir vextir 3,40%). |
|||
|