|
|||
2015-11-02 11:35:58 CET 2015-11-02 11:36:59 CET Arion Bank hf. - FjárhagsdagatalArion banki birtir afkomu fyrstu níu mánaða ársins 2015 miðvikudaginn 11. nóvemberArion banki birtir uppgjör fyrstu níu mánaða ársins 2015 miðvikudaginn 11. nóvember næstkomandi. Til að kynna uppgjörið verður haldinn símafundur á ensku fyrir markaðsaðila, fimmtudaginn 12. nóvember klukkan 13.00. Á fundinum mun Stefán Pétursson, fjármálastjóri Arion banka, fara yfir helstu atriði í uppgjöri bankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins. Áhugasamir geta sent tölvupóst á ir@arionbanki.is og fá í kjölfarið sendar nánari upplýsingar varðandi þátttöku á símafundinum. Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108. |
|||
|