2017-11-16 17:16:10 CET

2017-11-16 17:16:50 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn  lauk í dag  útboði sértryggðra skuldabréfa  þar sem fjórir flokkar
voru boðnir til sölu.

Heildartilboð  í  útboðinu  voru  30 talsins  og  námu  samtals  3.860 m. kr. að
nafnverði.

Tvö  tilboð að fjárhæð 120 m.  kr. að nafnverði bárust  í flokkinn LBANK CB 21 á
ávöxtunarkröfu á bilinu 5,18%-5,20%. Engum tilboðum var tekið í flokkinn.

Sex tilboð að fjárhæð 540 m. kr. að nafnverði bárust í nýjan markflokk, LBANK CB
23 á  ávöxtunarkröfu á  bilinu 5,20%-5,34%. Tilboðum  að fjárhæð  280 m. kr. var
tekið  í  flokkinn  á  ávöxtunarkröfunni  5,30%. Til  viðbótar verður flokkurinn
stækkaður  um  960 m.  kr.  vegna  verðbréfalána  í  tengslum við viðskiptavakt.
Heildarstærð flokksins við útgáfu verður 1.240 m. kr.

Ellefu  tilboð að fjárhæð 1.800 m. kr. að  nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI
24 á  ávöxtunarkröfu á  bilinu 2,60%-2,65%. Tilboðum  að fjárhæð  400 m. kr. var
tekið í flokkinn á ávöxtunarkröfunni 2,61%. Heildarstærð flokksins verður 9.020
m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Ellefu  tilboð að fjárhæð 1.400 m. kr. að  nafnverði bárust í flokkinn LBANK CBI
28 á  ávöxtunarkröfu á bilinu 2,54%-2,57%. Tilboðum  að fjárhæð 1.040 m. kr. var
tekið  í  flokkinn  á  ávöxtunarkröfunni  2,55%. Heildarstærð  flokksins  verður
19.320 m. kr. eftir viðbótarútgáfuna.

Stefnt  er  að  töku  skuldabréfanna  til  viðskipta  á Nasdaq Iceland þann 23.
nóvember  2017. Arion  banki,  Íslandsbanki  og  Kvika  sinna  viðskiptavakt með
sértryggða skuldabréfaflokka Landsbankans.

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með vísan
í  lög nr. 11/2008 og reglur  Fjármálaeftirlits nr. 528/2008. Nánari upplýsingar
um  skuldabréfin og  tryggingasafnið má  finna á  vefsvæði fjármögnunar bankans,
www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref.


[]