|
|||
2015-08-27 19:18:07 CEST 2015-08-27 19:19:03 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. :Útgáfa sértryggðra skuldabréfaÍslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á tveimur verðtryggðum flokkum sértryggðra skuldabréfa. Nýr flokkur, ISLA CBI 22, var boðinn út og seldust þar 1.080 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,00%. Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 26 var stækkaður um 2.140 m. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,05% . Heildareftirspurnin í útboðinu var 5,9 ma. kr., en 55% tilboða var tekið. Stefnt er á töku bréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 4. september næstkomandi. Viðskiptavakt fyrir alla flokka sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka er á vegum MP banka. Heildarstærð ISLA CBI 26 varð við þessa útgáfu 6,38 ma. kr. Alls hefur Íslandsbanki gefið út níu flokka sértryggðra skuldabréfa samtals að upphæð 42,57 ma. kr. frá fyrstu útgáfu bankans á slíkum bréfum í desember 2011. Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752/ 844 4752. Upplýsingafulltrúi - Már Másson, mar.masson@islandsbanki.is og í síma 440 4990. [HUG#1948078] |
|||
|