|
|||
2009-07-08 18:19:56 CEST 2009-07-08 18:20:56 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirAuglýsing um útboð ríkisvíxla RIKV 09 1116Mánudaginn 13. júlí kl: 11:00 fer fram útboð á ríkisvíxlum með tilboðsfyrirkomulagi hjá Seðlabanka Íslands. Seðlabankinn áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisskuldabréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 15. júlí 2009. Í þessu útboði óskar Seðlabankinn fyrir hönd ríkissjóðs eftir kauptilboðum í eftirfarandi flokk ríkisvíxla: Flokkur Gjalddagi Lánstími RIKV 09 1116 16.11.2009 4 mánuðir Ofangreindur flokkur verður skráður í NASDAQ OMX Norrænu kauphöllinni á Íslandi fimmtudaginn 16. júlí 2009. Nánari upplýsingar veitir Björgvin Sighvatsson, lánamálum ríkisins á alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, í síma 569 9633. |
|||
|