2021-12-02 18:49:02 CET

2021-12-02 18:49:02 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Islandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 7.360 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISB CB 27 voru samtals 340 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 4,12%. Heildartilboð voru 1.880 m.kr. á bilinu 4,12% - 4,20%. Seld verða áður útgefin bréf í eigu bankans. Útgefið nafnverð í flokknum er 43.840 m.kr.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISB CBI 28 voru samtals 2.580 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 0,02%. Heildartilboð voru 5.480 m.kr. á bilinu 0,00% - 0,10%. Bankinn gefur einnig út 5.000 m.kr. í flokknum til eigin nota. Útgefið nafnverð í flokknum verður 36.200 m.kr. eftir útgáfuna.

Í tengslum við útboðið bauðst eigendum flokksins ISB CBI 22 að selja bréf í flokknum gegn kaupum á skuldabréfum í ofangreindu útboði. Hreint verð á flokknum var fyrirfram ákveðið sem 103,340. Bankinn kaupir til baka 1.220 m.kr. að nafnvirði í flokknum.

Nánari upplýsingar veita: Fjárfestatengsl - ir@islandsbanki.is.