2014-01-24 09:35:08 CET

2014-01-24 09:36:09 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Standard & Poor‘s: Lánshæfishorfum Ríkissjóðs Íslands breytt í stöðugar úr neikvæðum


Standard & Poor‘s: Lánshæfishorfum Ríkissjóðs Íslands breytt í stöðugar úr
neikvæðum þar sem dregið hefur úr áhættu sem tengist ríkisfjármálum 

Í dag birti lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor‘s skýrslu þar sem fram
kemur að horfum um lánshæfi Ríkissjóðs Íslands hafi verið breytt í stöðugar úr
neikvæðum vegna þess að dregið hefur úr áhættu sem tengist ríkisfjármálum.
Jafnframt kemur fram að lánshæfiseinkunnirnar BBB-/A-3 eru staðfestar. 
Í skýrslunni kemur fram að Standard & Poor‘s (S&P) áætlar að heildarkostnaður
Ríkissjóðs Íslands vegna nýkynntra skuldaleiðréttingaraðgerða verði um 6% af
vergri landsframleiðslu (VLF) á næstu fjórum árum. S&P reiknar með því að
aðgerðirnar verði fjármagnaðar með skattahækkunum frekar en hallarekstri. Af
þessu leiðir að horfum fyrir lánshæfiseinkunnina er breytt í stöðugar úr
neikvæðum og lánshæfiseinkunnir fyrir skuldbindingar Ríkissjóðs Íslands
staðfestar. Lánshæfiseinkunnirnar fyrir erlendar og innlendar skuldbindingar
eru BBB-/A-3. Stöðugar horfur endurspegla að S&P telur vera jafnvægi milli
áhættuþátta, það er áframhaldandi efnahagsbata og óvissu vegna losunar
fjármagnshafta. 

Hér má nálgast skýrslu S&P í heild sinni.