|
|||
2024-07-03 15:50:00 CEST 2024-07-03 15:50:01 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarArion banki hf.: Moody's staðfestir A3 lánshæfismat Arion banka með stöðugum horfumMoody’s Ratings hefur staðfest A2/P-1 lánshæfismat Arion banka fyrir langtíma og skammtíma innlán, og A3 lánshæfismat Arion banka fyrir langtíma útgáfur og almenn ótryggð skuldabréf. Grunnlánshæfismat (BCA) og aðlagað BCA hefur verið staðfest sem baa2. Horfur fyrir langtíma innláns- og útgáfueinkunnir Arion banka eru stöðugar, sem endurspeglar væntingar Moody’s um að afkoma bankans byggist áfram á fjölbreyttum tekjustoðum næstu 12-18 mánuði. |
|||
|