|
|||
2014-02-04 16:31:00 CET 2014-02-04 16:31:01 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 20 0205Föstudaginn 7. febrúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með tilboðsfyrirkomulagi. Í þessu útboði verða seld bréf í nýjum sex ára flokki ríkisbréfa RIKB 20 0205. Flokkurinn ber 6,25% árlega nafnvexti með vaxtagjalddaga 5. febrúar ár hvert. Lokagjalddagi bréfsins er 5. febrúar 2020. Nánari lýsing á flokknum fylgir í viðhengi með þessari frétt og frekari upplýsingar er hægt að sjá á www.lanamal.is. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 11. febrúar 2014. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 12. febrúar 2014. Óskað verður eftir skráningu bréfa sem seld verða 7. febrúar 2014 í NASDAQ OMX á Íslandi þann 13. febrúar 2014. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. |
|||
|