|
|||
![]() |
|||
2017-02-02 18:12:34 CET 2017-02-02 18:12:34 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarIslandsbanki hf.: Íslandsbanki lýkur víxlaútboðiÍslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til sex og tólf mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 4.240 m.kr. og var tilboðum tekið fyrir 940 m.kr. Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 680 m.kr. á 5,24% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 2.840 m.kr. á bilinu 5,19% - 5,50%. Seldir voru víxlar til 12 mánaða að nafnverði 260 m.kr. á 5,49% flötum vöxtum. Heildartilboð voru 1.400 m.kr. á bilinu 5,48% - 5,65%. Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland 10. febrúar. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187. * Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005. [] |
|||
|