2011-11-23 18:34:02 CET

2011-11-23 18:35:05 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Matsfyrirtækið S&P breytti í dag horfum á lánshæfismati ríkissjóðs í stöðugar úr neikvæðum.


Matsfyrirtækið Standard & Poor‘s staðfesti í dag óbreytta lánshæfiseinkunn
BBB-/A-3 fyrir langtíma- og skammtímaskuldbindingar Ríkissjóðs Íslands í
erlendri og innlendri mynt. Horfum var breytt úr neikvæðum í stöðugar. 

Helstu atriði úr fréttatilkynningu Standard og Poor‘s eru í lauslegri þýðingu:

  -- Íslenskt efnahagslíf er á batavegi eftir fall þriggja stærstu
     viðskiptabankanna. Hagvöxtur hefur tekið við sér að nýju eftir tveggja ára
     djúpa niðursveiflu.

  -- Að okkar mati hefur náðst mikilsverður árangur í endurskipulagningu
     efnahagsreikninga einkageirans og við búumst við að því ferli verði að
     mestu lokið um mitt ár 2012.

  -- Við höfum því breytt horfum um lánshæfismat Íslands í stöðugar úr
     neikvæðum. Þar eru vegnar saman styrkari grunnstoðir efnahagslífsins á móti
     áhættu tengdri afléttingu gjaldeyrishafta á næstu árum.

  -- Við staðfestum einnig BBB-/A-3 lánshæfiseinkunnir Ríkissjóðs Íslands