|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
2017-09-06 17:48:33 CEST 2017-09-06 17:48:33 CEST REGULATED INFORMATION Icelandair Group hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarFlutningatölur ágúst 2017Í ágúst flutti Icelandair um 529 þúsund farþega og voru þeir 10% fleiri en í ágúst á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 12% og sætanýting var 87,9% samanborið við 87,6% á sama tíma í fyrra. Farþegar Air Iceland Connect voru 39 þúsund í ágúst og fjölgaði um 4% á milli ára. Framboð félagsins var aukið um 3% samanborið við ágúst 2016. Sætanýting var 72,3% og jókst um 2,4 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fjölgaði um 22% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 35% frá því á síðasta ári, sem skýrist af aukningu í innflutningi til Íslands og flutningum um Ísland á milli Evrópu og N-Ameríku. Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins dróst saman um 5% samanborið við ágúst í fyrra og herbergjanýting var 88,6% samanborið við 90,3% á síðasta ári. Eftirspurn bókana með styttri fyrirvara var minni en áætlað var ásamt því að meira var um afbókanir hópa en á sama tíma og í fyrra.
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|