2010-08-09 12:01:44 CEST

2010-08-09 12:02:42 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Vaxtaákvörðun


Samkvæmt 3. mgr. 21. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998 með síðari breytingum
og samkvæmt 14. gr. reglugerðar nr. 522/2004 um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf getur
stjórn Íbúðalánasjóðs ákvarðað vexti ÍLS-veðbréfa með hliðsjón af
fjármögnunarkostnaði í reglulegum útboðum íbúðabréfa og með vegnum
fjármagnskostnaði vegna uppgreiddra lána, að viðbættu vaxtaálagi. 
Vaxtaákvörðun Íbúðalánasjóðs byggir á ávöxtunarkröfu í útboði íbúðabréfa sem
haldið var 6. ágúst s.l. ásamt vegnum fjármagnskostnaði uppgreiðslna
ÍLS-veðbréfa. Vegnir vextir í útboðinu og uppgreiddra ÍLS-bréfa eru 3,58%. 

Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur lagt það til við félags- og tryggingamálaráðherra
að hækka vaxtaálag sjóðsins um 0,10% og hefur ráðherra fallist á þá tillögu.
Við breytingarnar verður vaxtaálag vegna rekstrar 0,45%, vegna útlánaáhættu
0,45% og vegna uppgreiðsluáhættu 0,50%. 

Íbúðalánasjóður hefur því í kjölfar útboðsins á íbúðabréfum og í samræmi við
ofangreinda breytingu á vaxtaálagi ákveðið að útlánavextir sjóðsins verði
óbreyttir og verði því sem hér segir: Útlánavextir íbúðalána með
uppgreiðsluákvæði verða 4,50% og 5,00% á íbúðalánum án uppgreiðsluákvæðis.
Þessi ákvörðun tekur gildi í dag, 9. ágúst 2010.