2017-06-22 11:14:54 CEST

2017-06-22 11:14:54 CEST


REGULATED INFORMATION

English Islandic
Landsbankinn hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Landsbankinn hf. : Landsbankinn greiðir upp eftirstöðvar skuldabréfa LBI ehf.


Landsbankinn hefur í dag greitt að fullu upp eftirstöðvar skuldabréfa sem gefin
voru út til gamla Landsbanka Íslands, nú LBI ehf., vegna eigna og skulda sem
færðar voru frá LBI til bankans í október 2008. Við uppgreiðslu námu
eftirstöðvar skuldarinnar um 16,2 milljörðum króna en þegar skuldabréfin til LBI
voru upphaflega gefin út nam fjárhæð þeirra samtals um 350 milljörðum króna á
þáverandi gengi.

Með því að greiða upp skuldabréfin við LBI lækkar Landsbankinn fjármagnskostnað
sinn og losar jafnframt um veðsetningu eigna sem stóðu til tryggingar
skuldabréfunum.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir:

"Góður árangur í rekstri og fjármögnun Landsbankans og batnandi efnahagslegar
aðstæður hafa gert bankanum kleift að endurgreiða skuldina við LBI mun hraðar en
útlit var fyrir. Þótt eftirstöðvar skuldarinnar við LBI hafi ekki verið hærri en
raun ber vitni markar uppgreiðsla hennar töluverð tímamót. Skuldin við LBI var á
sínum tíma mjög há, öll í erlendri mynt og endurgreiðslutíminn var tiltölulega
stuttur. Landsbankinn nýtur sífellt betri kjara á erlendum lánsfjármörkuðum og
með því að greiða upp óhagstæðari skuldabréf við LBI hefur bankinn sparað sér
umtalsverðan fjármagnskostnað."



Átti að ljúka árið 2018 en samið var um framlengingu til 2026

Skuldabréfin á milli LBI og Landsbankans voru byggð á samkomulagi sem gert var á
grundvelli ákvarðana Fjármálaeftirlitsins í október 2008, um flutning á eignum
og skuldum frá gamla Landsbanka Íslands hf. til Landsbankans. Skuldabréfin voru
í erlendri mynt og átti endurgreiðslu þeirra að ljúka í október 2018. Með
batnandi stöðu Landsbankans og íslensks efnahagslífs myndaðist fljótlega svigrúm
til að greiða fyrirfram inn á skuldina og greiddi bankinn t.a.m. rúmlega 70
milljarða inn á skuldina árið 2012 og 50 milljarða árið 2013. Engu að síður var
talið nauðsynlegt að gera breytingar á greiðsluskilmálum skuldabréfanna. Með því
að lengja endurgreiðsluferilinn var greitt fyrir afléttingu fjármagnshafta,
dregið úr óvissu um erlenda fjármögnun bankans og betri fjármagnsskipan bankans
til framtíðar tryggð. Í maí 2014 komust Landsbankinn og slitastjórn LBI að
samkomulagi um breytingar á skilmálum bréfanna. Samið var um lokagreiðsla yrði
innt af hendi í október 2026, en að bankinn hefði heimild til að greiða skuldina
niður að hluta eða að öllu leyti án kostnaðar hvenær sem er á tímabilinu.


[]