2008-12-23 16:02:58 CET

2008-12-23 16:03:58 CET


REGULATED INFORMATION

English Islandic
MP Fjárfestingarbanki hf. - Fyrirtækjafréttir

- Fjármálaeftirlitið staðfestir viðskiptabankaleyfi MP Banka hf.


Fjármálaeftirlitið veitti MP Banka hf. viðskiptabankaleyfi þann 10. október sl.
og var í fyrstu veitt til 31. desember 2008. 

Fjármálaeftirlitið hefur átt í frekari samskiptum við MP Banka eftir veitingu
starfsleyfisins og m.a. kallað eftir nýjum fjárhagsupplýsingum og upplýsingum
tengdri þeirri viðbótarstarfsemi sem felst í móttöku innlána. 

Fjármálaeftirlitið hefur yfirfarið fyrirliggjandi gögn og upplýsingar og hefur
ákveðið að samþykkja áframhaldandi starfsleyfi MP Banka hf. sem viðskiptabanki
og þar með til móttöku innlána. 

MP Banki hf. var stofnaður árið 1999, fékk starfsleyfi sem fjárfestingarbanki
árið 2004 og starfsleyfi sem viðskiptabanki í október 2008. 


Frekari upplýsingar veitir Styrmir Þór Bragason, forstjóri MP Banka. Sími +354
540 3200. 

Nánari upplýsingar um MP Banka má finna á heimasíðu bankans, www.mp.is. 

Nýtt logo  MP Banka má finna á heimasíðu bankans:
http://www.mp.is/fyrirtaekid/utgafa/logo/