|
|||
![]() |
|||
2012-06-13 13:45:55 CEST 2012-06-13 13:46:56 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 12 0917 og RIKV 12 1217Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 12 0917 og RIKV 12 1217 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 12 0917: Alls bárust 16 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 10.640 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 8.740 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,107 (flatir vextir 3,45%). RIKV 12 1217: Alls bárust 14 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 4.850 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 2.400 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,159 (flatir vextir 3,65%). |
|||
|