|
|||
![]() |
|||
2017-01-11 16:31:01 CET 2017-01-11 16:31:01 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarÚtboð óverðtryggðra ríkisbréfa RIKB 20 0205Föstudaginn 13. janúar kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með tilboðsfyrirkomulagi. Boðin verða til sölu óverðtryggð bréf í flokknum RIKB 20 0205. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu, til aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 17. janúar 2017. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 18. janúar 2017. SKIPTIÚTBOÐ Aðilar eiga þess kost í útboðinu að kaupa bréf í RIKB 20 0205 með sölu á RIKB 17 0206, sem fellur á gjalddaga 6. febrúar nk. Lánamál ríkisins kaupa RIKB 17 0206 á fyrirfram ákveðnu verði þ.e. hreina verðinu 99,990 (104,730437 með áföllum vöxtum m.v. 100 kr. nafnverðseiningu) m.v. uppgjör 18. janúar 2017. Til skýringar, jafngildir verðið 5,08% í flötum vöxtum. Andvirði bréfanna ásamt áföllnum vöxtum kemur þá sem greiðsla fyrir kaupum á nýjum bréfum. Þeir sem vilja nota RIKB 17 0206 sem greiðslu í útboðinu þurfa að tilkynna Lánamálum ríkisins það eigi síðar en kl. 14:00 þriðjudaginn 17. janúar 2017. Fjárfestar sem eiga bréf í RIKB 17 0206 og hafa áhuga á að endurfjárfesta í RIKB 20 0205 eru sérstaklega hvattir til þess að taka þátt í þessu útboði með því að hafa samband við næsta banka. Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. |
|||
|